ILM x MIA MAGIC

ILM x MIA MAGIC

 

Við erum svo spenntar að kynna fyrir ykkur samstarfið við ILM.

ILM er íslenskt kertamerki og eru kertin handgerð úr 100% náttúrulegu soyavaxi. Það sem mér finnst svo æðislegt við þessi kerti er að þú getur fengið áfyllingu í kertaglasið þitt. Hversu mikil snilld. Ég hafði samband við Sögu og Hlyn sem eiga ILM og tóku þau ekkert smá vel í þetta samstarf. Við höfum velt þessu fyrir okkur fram og tilbaka og langaði mig að samstarfið hefði meiri þýðingu en „bara“ að hafa það sem fjáröflun fyrir fleiri Míubókum. Ég spurði því Sögu hvernig henni fyndist að hafa kertin í minningu um fallega litla skottu sem okkur hjá Mia Magic þykir svo ofsalega vænt um. Hún samþykkti það og um leið fór í gang hugmyndavinna hvernig væri best að framkvæma þetta. Við komumst loks að niðurstöðu.

Kertin verða gerð í mjög takmörkuðu upplagi. 50 stk verða framleidd til sölu og fer allur ágóði beint til Mia Magic. Við ætlum að hafa viðburð í lok september (auglýsum það fljótlega) þar sem hægt verður að versla kertin, koma saman og eiga góða kvöldstund. Saga og hennar teymi eru að hanna umbúðir fyrir kertin í þessum skrifuðu orðum.

Saga bauð okkur að velja ilm á kertið okkar í samstarfi við ILM. Ég hitti svo Sögu á Te & Kaffi í sumar þar sem ég fékk að lykta nokkra ilmi og velja úr því sem Saga hafði hannað. ILM x MIA MAGIC er því með algjörlega nýjann ilm sem heitir: 2021

Þá að því hvernig við ætlum að tengja fallegu Kamillu Eir við kertin. Kamilla Eir fékk Míubox í mars en lést því miður þann sjötta maí sl.  Kamilla Eir tengist Mia Magic á svo ótrúlega margan hátt og fannst okkur tilvalið að tengja þetta fallega kerti við þessa fallegu lækningargyðju. „EIR“ þýðir lækninargyðja.

Okkur hlakkar mikið til þess að sýna ykkur meira frá þessu fallega samstarfi við ILM. Þangað til næst.

// Þórunn Eva og Míuteymið

 

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts