LANDINN | RÚV

LANDINN | RÚV

Þvílíkur heiður sem það var að fá óvænt símtal um boð í viðtal hjá Landanum. Takk elsku Þórdís og Maggi fyrir að fara svona vel með efnið og segja söguna okkar svona fallega. Ótrúlega dýrmætt.

Viðbrögðin hafa verið mikil við þættinum. Vil ég þakka ykkur öllum fyrir falleg orð í minn garð en ekki má gleyma að svona verkefni væri ekkert án allra þeirra einstaklinga og fyrirtækja sem leggja mér lið á einn eða annan hátt.

„Við erum hugrökk,

Móðir tveggja langveikra drengja fékk hugmynd að lokaverkefni í sjúkraliðanámi. Sú hugmynd er nú orðin að styrkjandi afli fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra.

Síðustu tuttugu árin hefur Þórunn Eva G. Pálsdóttir reglulega verið með syni sína tvo inn á sjúkrahúsi vegna genagalla í ónæmiskerfi þeirra.

Sem lokaverkefni í sjúkraliðanámi skrifaði hún barnabókina Mía fær lyfjabrunn, því henni þótti skorta upplýsingar um slíka aðgerð fyrir börnin og ekki síður fyrir aðstandendur. Þórunn Eva gaf bókina út sjálf og eftir það tóku hjólin að snúast.

Mia Magic varð til í miðjum heimsfaraldri, á besta tíma að sögn Þórunnar. Þegar veröldin hægði á sér gafst færi til að fá hugmyndir og endurhugsa ýmislegt. Í dag er Mia Magic orðin mikilvægur hluti í lífi langveikra barna og 500 prjónaðir Míubangsar eru á íslenskum heimilum.

Þórunn Eva hefur kynnt Miu Magic á ýmsum fjórðungssjúkrahúsum við mjög góðar undirtektir“.

Þið sem sáuð ekki Landann, þá er linkur á hann hér: Mía í Landanum

 

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts