Lind Hönnun x Mia Magic

Lind Hönnun x Mia Magic

Fyrr á þessu ári gaf LIND hönnun okkur töluvert af plaggötum þar sem orðið hugrekki var skilgreint og texti úr bókinni sem ég skrifaði, Mía fær Lyfjabrunn sett með á plaggatið. Það hafa margir spurt hvort hægt sé að kaupa það og er það loks orðið að veruleika þar sem LIND hönnun var að opna netverslun.

Ég fékk skilaboð í morgun frá Anítu Lind sem á LIND hönnun og hefur hún ákveðið að öll sala af þessu plaggati fari til Mia Magic. Það sem við erum þakklátar. Þetta er algjörlega ómetanlegt með öllu fyrir litla fallega félagið okkar.


Takk elsku Aníta Lind fyrir að vera með svona stórt og fallegt hjarta. Við mælum með að þið kíkið inná vefverslunin hennar því það er hægt að fá svo margt fallegt hjá henni fyrir jólagjafir. Eigið yndislega helgi.

| Þórunn Eva

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts