Mæðradags Míuboxin

Mæðradags Míuboxin

Mæðradags Míuboxin eru ótrúlega falleg í ár. Við fengum til liðs við okkur CU2 heildverslun og Lee Stafford. Verma kom einnig inní mæðradags Míuboxin með design letters bollum og Lakrids by Bülow !

Förum aðeins yfir hvað er í þessum fallegu mæðradags Míuboxum sem við dreyfðum hingað og þangað um landið.

CU2 & LEE STAFFORD:

Við Fríða vorum svo lukkulegar, fengum við að gjöf varasalva og hair apology og OMG ! what a treat ! Takk fyrir að gleðja okkur elsku CU2.

Verma:

Verma gladdi okkur Fríðu með lakkrís, höfum notið vel. Takk elsku Verma fyrir okkur.

Fyrsta mæðradags Míuboxið fór á Hvammstanga til dásamlegrar mömmu. Hún tók á móti okkur fyrir utan Grunnskólann þar sem hún vinnur. Við náðum heldur betur að koma henni á óvart. Heppilegt að hún var aldrei þessu vant með símann á sér og gat svarað þegar Fríða hringdi í hana.

Næsta mæðradags Míubox var afhent á Vitanum á Akureyri. Ótrúlega fallegur veitingastaður sem er með ó svo góðann heimilismat í hádeginu og nú á kvöldin einnig. Mamman sem fékk afhent mæðradags Míuboxið varð svo hissa að hún hafi fengið pakka og svo glöð að dóttir hennar sagðist aldrei hafa séð hana svona glaða ! awww svo best !

Reyðarfjörður fékk næstu mæðradags Míubox heimsókn og bönkuðum við uppá alveg óvænt hjá þessari mömmu og náðum við henni heimavið. Svo gaman að sjá svipin á henni þegar hún áttaði sig að hún væri að fá mæðradags Míubox. Fengum dásamlega fallegn dag og spegilsléttan fjörð.

Höfn í Hornafirði fékk fjórða mæðradags Míuboxið og fengum við send skilaboð að þessi sending hafi algjörlega snúið deginum við hjá þessari mömmu, erfiður dagur sem snérist í 180° og varð að gleðidegi. Það er útaf þessu sem við elskum að gleðja foreldrana. Þetta skiptir svo miklu máli fyrir foreldra hjörtun.

Fimmta og seinasta mærðadags Míuboxið fór á Selfoss. Við Kirkjubæjarklaustur hringir Erik Valur sonur minn í mig á facetime. Fríða heldur á símanum og hann byrjar að spjalla við okkur og réttir svo einni dásamlegri mömmu símann sem fer svo að spjalla við okkur, við þekkjum þessa skvísu og haldiði ekki bara að þetta hafi verið mamman sem við vorum á leið að heimsækja. Þvílík tilviljun. Við hentum því mæðradags Míuboxinu heim til hennar á Selfoss meðan hún gaf litla gorminum mínum knús frá mér.

Ég sit núna hér heima og skrifa restina af þessari yndislegu færslu. Takk fyrir að hjálpa okkur að gleðja allar þessar dásamlegu mömmur um allt land í tilefni af mæðradeginum 2022 !

// Þórunn Eva og Fríða Björk

 

 

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts