Það elska allir Míu, en líklega fáir meira en 2 ára, Iðunn Hrefna !
Hrefna Aradóttir, amma Iðunnar Hrefnu kom henni og Þorsteini Elfari bróðir hennar heldur betur á óvart á dögunum þegar hún var búin að mála Míu bestu á vegg í garðinum sínum fyrir þau. Eruði að sjá þessar ofurdúllur???
Hér er hægt að lesa smá um það hversu mikið Mía hefur hjálpað elsku Iðunni Hrefnu.
„Þegar að stóri bróðir veiktist og fór að vera mikið á Barnaspítalanum þá breyttist líf Iðunnar frekar mikið. Hún flakkaði á milli og var mjög mikið í pössun þar sem báðir foreldrar þurftu að sinna stóra bróður. Það reyndi alveg svakalega á Iðunni. Þorsteinn, stóri bróðir, kynntist Míu á spítalanum. Mía var stór hluti af glaðlega þættinum við dvölina hans. Hún veitti öryggi og kenndi honum hugrekki þegar mest þurfti á að halda. Þetta smitaðist síðan yfir á Iðunni sem þurfti sjálf að kynnast Barnaspítalanum sem aðstandandi. Hún las bækurnar heima, sá myndirnar á veggjum spítalans og sofnaði svo á kvöldin í faðmlögum við Míu bangsann sinn. Í dag er spítalinn í miklu uppáhaldi hjá Iðunni, sér í lagi vegna Míu sem er aðal leikfangið heima fyrir. Hún veit líka vel að Mía er hugrökk, jafnvel í erfiðum aðstæðum, meðal annars þess vegna er gott að hafa Míu hjá sér til að hjálpa í slíkum aðstæðum“
Texti frá Gullu Gull, aka mömmu Iðunnar og Þorsteins.
Hér sjáið þið elsku Þorstein stóra bróðir, hann er í verkefni sem enginn vill fá. En hann er heldur betur að rokka það með annarri. Alveg eins og Iðunn Hrefna að rokka erfitt verkefni að vera systir barns sem greinist með krabbamein.
Það er svo magnað að fá svona sent, sjá hvað Mía er að hjálpa mörgum og á svo fjölbreyttann hátt.
Takk elsku Gulla fyrir að sýna mér þessar myndir og takk fyrir ömmu Hrefnu <3
xo
Þórunn Eva







