ó það er svo gaman að fylgjast með bókinni Mía fer í Tívolí verða að veruleika. Mig langar að sýna ykkur nokkrar myndir úr bókinni. Bergrún Íris myndlýsir fallegu bókinni okkar og hefur hún verið með son minn Jón Sverrir í því að lita og skyggja myndirnar. Þvílíkt tækifæri fyrir strák sem ætlar sér langt í heimi hönnunar, enda á hönnunarbraut í Fjölbraut í Garðabæ, að fá þetta risa stóra tækifæri að læra af einni allra bestu listakonu sem Ísland hefur alið af sér.
Ég er ekki mjög æst í að sýna margar myndir EN hér sjáiði smá úr bókinni. Vantar textann eins og þið sjáið en bókin er á leið í umbrot hjá dásamlegu Blæ sem setur textann inn fyrir okkur og fleira.
Svo er margt skemmtilegt að undirbúa núna fyrir útgáfu á bókinni. Þurfum að safna aðeins meiri pening til þess að ná að klára fjármagna hana en þetta er samt allt að hafast.
Hér að neðan sjáið þið fyrirtæki sem hafa lagt bókaútgáfunni lið. Við erum svo endalaust þakklátar og hlökkum til að sjá fleiri taka þátt.
xo, Þórunn Eva







