Míu Shop er glæný vefverslun á fallegu síðunni okkar. Vefverslunin er í vinnslu en síðan fer í gang þegar við setjum Octacon x Mia Magic samstarfið okkar í loftið. Þá verður hægt að versla hjá okkur beint.
Ég er að vinna í að setja inn greiðsluvalmöguleika. Hvernig þið fáið vörurnanar ykkar, sendar eða sóttar og hvert þá þið getið sótt þær. Þetta er allt sama í vinnslu hjá okkur. Þessi fallega viðbót hjá okkur á eftir að nýtast okkur vel í þeim fjáröflunum sem við verðum með í framtíðinni.

Núna höfum við verið með fallegar fjáraflanir með Hulan, ILM og næst er Octagon. Við tökum svo pásu í svona samstarfi fram yfir áramót en það er ekkert fast samstarf komið fyrir árið 2022. Erum að plana árið 2022 og það sem er komið eru Míuverðlaunin í apríl og október. Svo ég leyfi ykkur að lesa hugsanir mínar þá langar mig að skipuleggja árið mjög vel svo það sé ekki allt á sama tíma. kannski að það séu 2-3 svona vöru samstörf á ári og hafa þau þá með góðu millibili. En sjáum hvað gerist… ég lofa engu. Endlaust af hugmyndum í þessum kolli….
Mig dreymir um annað samstarf með Ísbúð Huppu en það var sturlað skemmtilegt. Svo gaman að sjá ykkur njóta þess að fara saman og fá ykkur Míu krútt. Bræddi hjarta mitt svo. Vonandi getum við gert þannig aftur næsta vor/sumar.
Við eigum von á Octagon samstarfi inná vefverslun á næstu vikum og svo er það Míu bangsinn okkar sem fær líklega að smella sér þar inn líka. Sjáum hvernig það spilast allt saman.
| Þórunn Eva







