Við erum á leið norður og höfum því ákveðið að opna fyrir Míubox umsóknir fyrir norðurlandið þann 16.mars 2024.
⏰ SKELLIÐ DAGSETNINGUNNI Í DAGATALIÐ!
Við ætlum að afhenda sex Míubox barna og sex Míubox foreldra á norðurlandinu og því óskum við eftir umsóknum fyrir foreldra og börn sem búa á því svæði.
Börnin sem koma til greina eru 0-18 ára gömul.
❗ Mikilvægt ❗ er að sækja aftur um fyrir börn og foreldra sem hefur verið sótt um fyrir áður og ekki fengið úthlutun.
Þórunn Eva G. Pálsdóttir
Stofnandi Mia Magic




