Gleðilegan mánudag og til hamingju allir sem hlutu tilnefningu til Míuverðlaunanna 2022. Þið eruð stórkostleg öll með tölu. Takk fyrir að vera þið og vinna vinnuna ykkar þannig að tekið sé eftir. Það eru töluvert að nýjum aðilum hér sem fengu tilnefningu og vá hvað er gaman að sjá það. Þetta er ekki vinsældarkeppni og því er ekki verið að kjósa eða safna lækum. Það er lesið yfir hverja einustu tilnefningu með tilliti til þess sem sagt er um viðkomandi.
Hér að neðan er listi yfir alla þá sem fengu tilnefningu. Nú hefst vinnan við að finna topp 10 hópinn hjá valnefndinni sem skipar dásamlegan hóp fólks. Þessi 10 manna hópur fær svo boð um að mæta á Míuverðlauninn í ár. Smá breyting en þegar svona verðlaun eru í mótun þá þarf aðeins að prufa sig áfram og breyta, bæta eða jafnvel bakka í það sem var. Sjáum hvað verður en þetta er skipulagið núna. Þeir sem eru ekki í topp 10 hópnum fá samt sem áður viðurkenningu í formi nælu sem gaman er að bera sem vott um að hafa fengið tilnefningu.
Míuverðlaunin verða haldin þann 15. september nk. á Spritz Venue. Eva Ruza og Hlynur Atli Harðarson verða kynnar þetta kvöld og mun Brynja Dan afhenda verðlaunin í þetta sinn. Magnaður hópur.
Epal er aðalstyrktaraðili Míuverðlaunna 2022 og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. En þá að listanum.
Sérfræðingar
Ásgeir Haraldsson
-Prófessor í barnalækningum
Brynja Kristín Þórarinsdóttir
-Sérfræðingur í almennum barnalækningum og heila- og taugalæknir barna
Elfar Úlfarsson
-Taugaskurðlæknir
Gróa Björk Jóhannesdóttir
-Sérfræðingur í almennum barnalækningum og meltingarlækningum barna
Gunnar Auðólfsson
-Lýtalskurðæknir
Halldóra Kristín Þórarinsdóttir
-Sérfræðingur í almennum barnalækningum og krabbameinsklækningum barna
Hans Tómas Björnsson
-Sérfræðingur í barna og erfðalækngingum
Helga Elídóttir
-Sérfræðingur í almennum barnalækningum, og ofnæmis- og lugnalækningum barna
Ingólfur Rögnvaldsson
-Sérfræðingur í almennum barnalækningum og hjartalækningum barna
Sigurður Einar Marelsson
-Sérfræðingur í almennum barnalækningum og heila- og taugalæknir barna
Tryggvi Helgason
-Sérfræðingur í almennum barnalækningum
Valtýr Stefánsson Thors
-Sérfræðingur í almennum barnalækningum & smitjúkdómalækningum barna
Hjúkrunarfræðingur
Auður Guðbrandsdóttir
-Barnahjúkrunarfræðingur
Bergljót Steinsdóttir
-Barnahjúkrunarfræðingur MSc
Erla Ösp Heiðarsdóttir
-Barnahjúkrunarfræðingur
Gerða Friðriksdóttir
-Barnahjúkrunarfræðingur
Gyða Valdís Guðmundsdóttir
-Barna Hjúkrunarfræðingur
Oddný Kristinsdóttir
-Barnahjúkrunarfræðingur MSc
Sigrún María Guðlaugsdóttir
-Barnahjúkrunarfræðingur
Næringarfræðingur
Erna Petersen
-Næringarfræðingur barna
Sjúkraþjálfari
Agnes Erlingsdóttir
-Sjúkraþjálfari
Guðbjörg Eggertsdóttir
-Sjúkraþjálfari
Marrit Meintema
-Sjúkraþjálfari
Þroskaþjálfi
Helga Jónasdóttir
-Þroskaþjálfi
Innilega til hamingju öll sem eitt. Hlökkum til að afhjúpa topp 10 hópinn.
xo, Mia Magic







