Míuverðlaunin 2024 í myndum

Míuverðlaunin 2024 í myndum

Ingólf­ur Rögn­valds­son barna­hjarta­lækn­ir hlaut Míu­verðlaun­in sem voru af­hent í fimmta sinn við hátíðlega at­höfn á Mengi, í miðbæ Reykja­vík­ur, á fimmtu­dag. Tíu heil­brigðis­starfs­menn sem vinna með lang­veik­um börn­um voru heiðraðir á viðburðinum.

„Míu­verðlaun­in eru verðlaun til að heiðra þá sem koma að þjón­ustu lang­veikra barna á einn eða ann­an hátt. Ein­hver sem hef­ur hjálpað eða stutt við þig og þína fjöl­skyldu á erfiðum tíma. Það sem þeim finnst vera „bara vinn­an sín“ get­ur skipt sköp­um fyr­ir aðstand­end­ur lang­veikra barna og börn­in sjálf. Hægt er að til­nefna heil­brigðis­starfs­mann í hvaða starfs­stétt sem er, hvar á land­inu sem er,“ er haft eft­ir Þór­unni G. Evu Páls­dótt­ur, stofn­anda Miu Magic, í til­kynn­ingu um verðlaun­in.

Seg­ir þar enn frem­ur að tutt­ugu heil­brigðis­starfs­menn hafi verið til­nefnd­ir í ár og val­nefnd Míu­verðlaun­anna valdi svo topp tíu hóp­inn sem mætt­ur var á Mengi á fimmtu­dags­kvöld.

Egill hjá mbl.is ritaði fallega frétt um Míuverðlaunin og ætla ég að leyfa henni að fylgja hér með: LESA

Verðlauna­grip­ur­inn. Kerta­stjak­inn er hannaður af ís­lenska lista­mann­in­um Óla Hilm og prýðir orðið „hug­rekki“ sem hef­ur verið ein­kenn­isorð Míu Magic og er tekið úr fyrstu bók­inni, Mía fær lyfja­brunn. Hér er Óli ásamt dóttir sinni, Þórunni og Ingólfi, barnahjartalækni.

Þakkir til þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem tóku þátt eru ó svo innilegar því þetta væri ekki hægt án ykkar. Töst, Ölgerðin, Verma, Danól, Artasan, Sælkerabúðin, Gulli Arnar, Luna Studio, Eventum, Anna Steinsen, Sigga Ózk, Óli Hilm, Reykjavík Letterpress, Trúðavaktin, Rakel Ósk ljósmyndari, Pixel, Prentun.is, Signa, Epal og fleiri.

Takk Eventum fyrir að setja upp viðburðinn í ár.

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts