Í tilefni af vitundarvikunni um meðfædda hjartagalla er Neistinn að selja þessa fallegu súkkulaðipakkningu í samstarfi við Omnom.
Hversu tilvalið er að gleðja einhvern sem maður elskar fyrir Valentínusardaginn! Þrjár plötur eru í pakkanum, Caramel, Sea salted almonds og Lakkrís + Sea salt og er askjan á 2.990 kr. Hægt er að versla pakkninguna á heimasíðu Neistans, hér: https://neistinn.is/product/sukkuladigjafasett-neistans eða kíkja á kynningarbásinn hjá þeim sem verður í Kringlunni um helgina, 12.-13. febrúar.

Með því að kaupa súkkulaði af Neistanum ertu að styrkja við fjölskyldur hjartveikra barna á Íslandi. Við hjá Mia Magic erum svo ótrúlega þakklát og stolt að fá að hjálpa Neistanum að þessa vikuna að vekja athygli á meðfæddum hjartagöllum.








