Vá það er svo gaman að vera boðið á viðburð sem er einungis fyrir x marga. Það er eitthvað svo „feeling special“ tilfinning að vera partur af hóp sem fær boð á eins fallegan viðburð og við fengum boð á sl fimmtudag.

Nine Kids er ein af þeim verslunum sem hefur stutt ansi vel við okkur í formi gjafa í Míubox barna. Þær Sigga og Helga hafa alltaf sagt „já! að sjálfsögðu erum við með“ í hvert sinn sem við óskum eftir vörum frá þeim. Það er svo ómetanlegt að hafa fyrirtæki eins og Nine Kids sem samstarfsaðila Mia Magic því ef við hefðum ekki framúrskarandi fyrirtæki með okkur gætum við ekki glatt börnin með Míuboxi í hverjum mánuði.
Nine Kids er t.d með fallega vörumerkið Cybex sem er leiðandi vörumerki í bílstólum, kerrum og vögnum sem dæmi. Nomi, Jellycat og Little Dutch fá einnig að eiga heima í Nine Kids ásamt fjölda annara dásamlegra vörumerkja.
Takk elsku Sigga og Helga fyrir að bjóða Mia Magic á dásamlega viðburðinn ykkar. Til hamingju með fallegu búðina ykkar og vá hvað okkur hlakkar til að vinna meira með ykkur. Svo fallegt allt saman eins og allt sem þið gerið. Við mælum klárlega með að þið kíkið í eina allra fallegustu barnavöruverslun landsins.
| Þórunn Eva











