OPIÐ fyrir Míubox umsóknir

OPIÐ fyrir Míubox umsóknir

Við erum búin að opna fyrir Míubox umsóknir fyrir AUSTURLAND 🤩

Ferðin verður farin í maí. Endilega deilið fyrir okkur þessum pósti því það er erfitt að finna börnin út á landi sem eru langveik. Þau missa oft af allskonar því þau eiga ekki heima í kringum höfuðborgina og það má alls ekki gerast. Þess vegna leitum við að Míubox umsóknum fyrir börn á austurlandi núna. Sama gildir fyrir foreldra Míuboxin.

Við erum að fara í annað sinn á austurland. Við höfum farið um allt land og gaman að fá að fara aftur austur.
Umsóknarsíða

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts