Við höfum opnað fyrir tilnefningar, hægt er að tilnefna HÉR
Við heildarúthlutun skal hafa í huga eftirfarandi;
- Að viðkomandi sé fyrirmynd fyrir aðra heilbrigðisstarfsmenn þegar komið er að umönnun barna og samskipti við fjölskyldur þeirra.
- Að viðkomandi sé viljugur að vinna með öðru heilbrigðisstarfsfólki sé það hagur barnsins.
- Að viðkomandi skapi jákvætt og öruggt umhverfi fyrir barnið og fjölskyldur þeirra.
- Að viðkomandi leggi sig fram við að sýna skilning og útskýrir allt vel til að barnið og fjölskyldan skilji hvað er í gangi.
- Að viðkomandi gefi sér tíma til að hlusta á áhyggjur fjölskyldunnar og geri ekki lítið úr þeim.
Ef nægar upplýsingar berast ekki með umsókninni getur nefndin ógilt umsóknina. Mikilvægt er að nefna það sem viðkomandi aðili gerði gott á því ári sem viðkomandi er tilnefndur.
Sérstök valnefnd fer yfir allar þær tilnefningar sem berast og velur eina af þeim sem fær úthlutað Míuverðlaunin.
Í nefndinni eru eftirfarandi fullrúar:
Bára Hildur Jóhannsdóttir, gæða- og mannauðsstjóri í Forsetisráðuneytinu
Elva Kristín Arnarsdóttir, eigandi Skjaldbaka Heildverslun & Hulan.is
Fríða Björk Arnardóttir, Framkvæmdastjóri Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna
Jón Magnús Kristjánsson, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu
Úlfar Konráð Svansson, vörumerkjastjóri Better You á Íslandi
Þórunn Eva G. Pálsdóttir, stofnandi & eigandi Mia Magic
Elsa Harðardóttir, viðburðastjóri hjá Eventum.




