Hér koma myndir úr Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2024 ! Takk elsku Rakel Ósk ljósmyndari fyrir að koma og taka myndir fyrir okkur. Ekkert smá gaman að eiga fallegar myndir.
Í ár, eins og í fyrra, vorum við með hvatningarstöð á Eiðisgranda. Við verðum aftur þar á næsta ári. Núna höfum við 2x tekið þátt á hvatningarstöð fyrir 10km – 21 km og 42 km og kunnum aðeins á það fyrirkomulag. Með hverju árinu erum við að bæta okkur og læra betur á hlaupið og vá hvað voru margir sem hlupu fyrir okkur núna. Í sannleika sagt, þá bjuggumst við aldrei við því að fá svona marga hlaupara í ár. EN OMÆ hvað við erum þakklát.
Við gætum ekki verið búin að safna yfir 3 Milljónir ef það væri ekki fyrir hlauparana okkar og allt þeirra fólk sem hefur stutt þau í sinni vegferð að hlaupa fyrir Mia Magic.
Takk allir sem völdu að hlaupa fyrir Mia Magic, takk allir sem hjálpuðu okkur að gleðja hlauparana okkar með gjöf. Takk allir sem studdu við bakið á hlaupurunum sínum. Takk Egill fyrir frábær viðtöl með ó svo viðkvæmum upplýsingum sem virkilega vel var farið með. Takk Iceherbs fyrir að hjálpa okkur að vera sýnileg. Takk Craftverslun fyrir að merkja alla okkar flottu boli frá ykkur, bolirnir slógu í gegn eins og sjá má á myndunum !!!!
Takk bestustu bestu sjálfboðaliðar… án ykkar væri ekkert af þessu hægt !
Ég er 100% að gleyma einhverjum hérna en mikið sem ég hlakka til næsta árs. Þar sem við erum að verða sjóaðri í þessu þá ætlum við að einbeita okkur næst að því að vera með einhverskonar meet point fyrir skemmtiskokkið á næsta ári !!
Hlaupahópur Mia Magic 2024 er hópur sem safnast hefur hægt og rólega inn í , ef þið viljið koma þangað og vera með fyrir næsta ár, endilega komið í hópinn okkar.
Njótið myndanna frá elsku Rakel Ósk ljósmyndari 




