Styrkur í minningu Elvíru Maríu

Styrkur í minningu Elvíru Maríu

Þann 28. Mars sl. barst Mia Magic rausnarlegur styrkur frá Líknarsjóði Ögnu og Halldórs Jónssonar að upphæð 3.000.000 kr. Var styrkurinn afhentur í minningu Elvíru Maríu Sigurðardóttur sem lést, sumarið 2023 einungis 2 og hálfs árs gömul. Voru það Kristján S. Sigmundsson & Guðrún Herdís Guðlaugsdóttir sem afhentu Mia Magic styrkinn. Kristján S. Sigmundsson er afa bróðir Elvíru Maríu. 


Elvíra María er stór partur af Mia Magic og verður það ávallt. Því er þessi styrkur enn dýrmætari fyrir okkur. 

“Agna og Halldór stofnuðu fyrirtækið Halldór Jónsson hf árið 1955. Þau höfðu mikinn áhuga á heilbrigðismálum og létu ýmis mannúðarmál til sín taka. Halldór lést árið 1977, þá aðeins 67 ára að aldri, en eftir fráfall hans stofnaði Agna líknarsjóð sem skyldi taka til starfa að henni látinni og ánafnaði hún sjóðnum allar eigur sínar. Frysta úthlutun úr sjóðnum var árið 2010 en hlutverk hans er að styrkja hvers konar líknarstarfsemi á Íslandi. Stjórn sjóðsins skipa Kristján S. Sigmundsson, formaður, Guðrún Herdís Guðlaugsdóttir og Jón Grímsson.”

Við þökkum kærlega fyrir þennan einstaka styrk. Enn fallegra að hann var afhentur í minningu elsku vinkonu okkar. 

Þetta er hæsti styrkur sem Mia Magic hefur hlotið og erum við enn orðlaus yfir því hversu mikið er til af góðu fólki. 

Fyrir hönd Mia Magic
Þórunn Eva G. Pálsdóttir

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts