Vissir þú að við höfum alveg frá upphafi Míuboxanna fært systkinum barnanna sem fá úthlutun smá glaðning líka. Þau eru ekki skilin útundan og við erum fyrirtækjunum svo þakklát sem láta okkur hafa auka vörur fyrir öll flottu, hugrökku systkinin.
Þegar við fórum austur í maí, þá fengu öll systkini tösku, lyklakippu, nestisbox, brúsa og fleira fallegt. Oftast setjum við bækur líka. Snuð fyrir þau systkini sem eru með duddu og þar fram eftir götunum. Við gefum lang oftast okkar eigin taupoka en þeir eru búnir í bili. Bíðum eftir nýrri sendingu, gáfum því flottu Craft sundpokana sem allir geta pantað HÉR

Takk allir sem taka þátt með okkur, við erum ykkur svo óendanlega þakklát <3
Nokkrar myndir af systkina fjöri fá að fylgja með !






