Ef við byrjum á byrjuninni þá óskaði ég mér heitt og innilega að Tara myndi hjálpa mér að útbúa fallega setningu á Míuboxin þegar ég var að reyna að ákveða hvernig mig langaði að þau litu út. Dásamlega Tara svaraði kallinu og úr varð fyrsta samstarfið okkar saman.
Nú höfum við afhent rúmlega 30 Míubox með þessum fallegu orðum. Míuboxin vekja alltaf athylgi og held ég að einfaldleiki þess sé svona sterkur og skilaboðin komi enn betur til skila þess vegna.
Í ágúst 2021 sendi ég henni línu að mig langaði svo að gera plaggöt sem færu í Míubox foreldra á árinu 2022. Ég sendi Töru að orðið „styrkur“ væri eitthvað sem mig langaði að koma fallega inní setningu sem allir foreldrar langveikra barna gætu samsamað sig við. Ég lét þessa setningu með til hennar „fallegu börnin okkar gætu þetta ekki nema með styrk frá mömmu og pabba og öfugt. Langar svo að koma þessari setningu í fallegri setningu“ og úr varð þessi fallegi texti frá yndislegu Töru Tjörva.

Draumurinn um að setja plaggat með þessum texta í foreldra míuboxin varð að veruleika og þakka ég elsku Töru innilega fyrir. Hún gaf Mia Magic vinnu sína og öll 24 plaggötin í míuboxin sem afhent verða foreldrum á þessu ári.
Takk Tara og takk fyrir að vera þú !
xo Þórunn Eva







