TOPP 10 | Míuverðlaunin

TOPP 10 | Míuverðlaunin

Þá höfum við valið topp 10 hópinn fyrir Míuverðlaunin 2024. Okkur langar að óska ykkur öllum innilega til hamingju og hlökkum við til að sjá ykkur á Míuverðlaununum í september. Það fá allir í topp 10 hópnum boðskort með nánari upplýsingum þegar nær dregur. En gaman væri ef þið skelltuð seinnipartinum, 12.september í dagatalið.

Allir 20 sem tilnefndir voru fyrir árið 2024 fá viðurkenningu. Við höfum haft þann háttinn á að senda öllum smá gjöf. Hlökkum til að heiðra ykkur öll með fallegri Míunælu. Það kemur ný næla fyrir hvert ár og er hún einstaklega falleg í ár.

Enn og aftur, til hamingju með ykkur öll, sjáumst hress í september.

Mía og valnefndin

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts