Míuverðlaunin voru haldin með pompi og prakt í veislusalnum Sjálandi í kvöld. Verðlaunin, sem veitt hafa verið síðustu sex ár, eru til þess gerð að heiðra þá sem komið hafa að þjónustu við langveik börn og fjölskyldu þeirra með einum eða öðrum hætti. Verðlaunin eru gefin undir góðgerðarfélaginu Mia Magic og er hægt að senda inn tilnefningar til verðlaunanna ár hvert. Í ár voru það 34 tilnefningar sem bárust valnefndinni og voru 10 af þeim teknar til nánari skoðunnar.

Valtýr Stefánsson Thors, Barnasmitsjúkdómalæknir á Landspítalanum, hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir störf sín í þágu barna, ásamt sérlega góðri hæfni sinni í bæði fagmannlegum og mannlegum samskiptum við börn og aðstandendur þeirra.
Hér að neðan er textabrot frá tilnefningunni hans Valtýrs.
„Valtýr tók á móti fjölskyldunni okkar með hlýju, góðri nærveru og virðingu ekki aðeins sem fagmanneskja heldur sem manneskja. Hann sýnir barninu okkar tillitsemi og traust og mætir líka okkur foreldrunum með stuðningi, jákvæðni og skilningi. Hann heldur tengslum jafnvel utan skipulagðra viðtala og gefur sig að í öruggum og mannlegum samskiptum. Barnið okkar tengir hann ekki bara við lækningu heldur vináttu og það segir allt sem segja þarf.“
Valtýr, sem heyrði fyrst af því að hann hlyti verðlaunin þegar hann var úti að hlaupa í Norðurárdalnum, segir það bæði skemmtilegt og gefandi að vinna með fjölbreyttum hópi barna og fjölskyldum þeirra og að mikill heiður fylgi því að vera tilnefndur til verðlaunanna. Lykillinn í árangursríkum samskiptum að hans mati er að tala skýrt og gefa sér tíma í að hlusta á alla málsaðila, þannig verði andrúmsloftið afslappaðra.
,,Það er mikill heiður að hljóta tilnefningu til Míuverðlauna, því það er úrvalslið sem sinnir börnum með sjúkdóma og fjölskyldum þeirra á Íslandi. Ég tek við verðlaununum sem liðsmaður Barnaspítalans, því án samvinnu og samheldni er erfitt að veita góða þjónustu.”
Auk Valtýs voru 9 einstaklingar sem valin voru af valnefnd heiðruð með viðurkenningarskjölum og gjafapokum á viðburðinum. Topp tíu hópurinn hlutu fékk afhenta Míu nælu en nælurnar hafa undanfarin ár fest sér sess sem fallegt merki um öryggi og hlýju að sögn Þórunnar Evu stofnanda Mia Magic.

Viðburðurinn var glæsilegur frá A til Ö, skapandi.is sá um skipulagningu, lunastudio.is sá um að skreyta með fallegum blómum, Sjáland sá um veitingar og að athöfnin færi fram á fallegum stað og Exton sá um ljósin.
Anna Steinsen var kynnir, Hildur Árnadóttir einnig þekkt sem H.loft hannaði verðlaunin og Snæ Humadóttir afhenti þau. Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir hélt erindi sem foreldri langveiks barns og Erna Hrönn flutti vel valin lög fyrir gesti.

Mikil gleði var við völd og kvöldið heppnaðist gríðarlega vel.
Enika Karen skrifar




