Vestfirðir | Samstarfsaðilar

Vestfirðir | Samstarfsaðilar

Við gætum aldrei gert það sem við erum að gera nema með hjálp frá frábærum fyrirtækjum. Bílaumboðið Askja hefur ávallt hjálpað okkur þegar við förum út á land og það var engin breyting á í þetta sinn. Drauma bíll sem við fengum, kom okkur meðal annars uppá Bolafjall. Undirrituð hefði sjálfsagt aldrei játað þessari góðu hugmynd ferðafélaga síns ef að hún hefði vitað hversu bratt var þarna upp.

Nei, haldið ykkur… bensínljósið kom líka á leið upp !!!!!!!!! eitthvað sem ég er með fóbíu fyrir á háu stigi. Voru samt alveg 71 km í boði á tankinum og bara 9 km ca frá bensínstöð en …jesús.. hátt uppi og líka bensínljós.. kláraðu mig ekki !

Við skelltum okkur út á útsýnispallinn, öskruðum aðeins þegar brakaði í pallinum. Hélduð samt kúlinu.. held ég. Þetta var sturluð upplifun og í þykjó þá hlupum við ekki útaf pallinum þegar brakaði. Við fórum aftur útá og löbbuðum svo pallinn alveg tilbaka… nei sko þetta lookar ekkert rosalegt, en þetta er rosalegt að upplifa.

Við fengum að gista á Hótel Ísafirði, Kristján hótelstjóri er einn sá allra flottasti og fengum við dásamlegar móttökur. Morgunverðurinn var frábær, rúmin æðisleg og í heildina frábær upplifun. Við hittum svo Kristján í morgunverðarsalnum alveg óvænt og þökkuðum fyrir okkur. Dásamlegt að geta þakkað fyrir sig í persónu en ekki í gegnum e-mail. Best!

Heydalur var næsti náttstaður, þið verðið að fara í Heydal! Þetta er dásamlegur staður. Það er allt þarna og þú þarft ekki að fara þaðan ef þú vilt eiga bara helgi í notalegheitum án þess að hreyfa bílinn. Við fengum gistinguna að gjöf eins og gistinguna á Hótel Ísafirði. Þegar ég ætlaði að fara að gera upp matinn um kvöldið þá fannst þeim Mia Magic svo geggjað að við fengum kvöldverðinn einnig að gjöf. Litla dekrið á okkur skvísunum.

Þetta er algjörlega magnaður bær að sækja heim. Mér leið smá eins og við hefðum dottið inní Hallmark mynd, hundurinn Bangsi og páfagaukurinn Kobbi voru ansi miklir gestgjafar. Enda var ekki annað hægt en að mynda þá aðeins. 

Takk Bílaumboðið Askja, Hótel Ísafjörður og Heydalur fyrir að hjálpa okkur að gleðja með Míuboxum á vestfjörðum. Algjörlega ómetanlegt með öllu að fá hjálp við að koma með smá gleði í hjörtun á fallegu krílunum og foreldrum þeirra. 

Míuboxin fengu, Baldur, Hólmfríður Anna & Maja ! 

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts