Við fengum svo fallega gjöf

Við fengum svo fallega gjöf

Þegar einn einstaklingur les færslu á Facebook sem verður til þess að við fáum aðstoð við að halda starfi Mia Magic áfram. Hversu dásamlegt bara? Ég sem ætlaði ekki að þora að birta þessa tilteknu færslu en ákvað svo að láta vaða. Vá hvað ég sé ekki eftir því.

Að fá hjálp við kaup á tölvu er eitt af því besta sem við höfum fengið að gjöf hjá Mia Magic. Við gætum ekki haldið áfram að gefa út bækur, setja inn færslur um Míubox, senda á fyrirtæki um samstörf og ó svo margt fleira, ef að við værum ekki með góða tölvu.

Við vorum komin á þann stað í tölvu málum að endurnýjun var nauðsynleg. Rebekkustúkan nr. 7, Þorgerður I.O.O.F kom þá eins og engill í mannsmynd á hárréttum tíma og bauðst til að hjálpa okkur við kaup á tölvu. Þær Guðný og Guðrún eru búnar að vera svo ótrúlega magnaðar að vinna með. Takk fyrir að vera þið.

Hér að neðan sjáið þið fallega gjafabréfið sem við fengum og fallegu tölvuna. Takk fyrir okkur elsku vinkonur og takk fyrir dásamlega fallega stund í húsakynnum ykkar.  Við Jón Sverrir fórum saman að taka við gjöfinni og vá hvað var gaman að hafa hann með. Hann er jú upphafið af þessu öllu.


Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts