Feðradagurinn | Takk

Feðradagurinn | Takk

Við Fríða erum ekki mikið að halda uppá þessa daga eins og mærðadaginn og feðradaginn. Við erum meira í íslensku dögunum eins og bóndadeginum og konudeginum. Hinsvegar var Mía ofsalega æst í að gleðja mömmur og pabba svo við ákváðum að láta það eftir skvísunni að halda uppá þessa daga og gera þá að föstum lið hjá okkur.

Þar sem við gáfum 5 yndislegum mæðrum smá gjöf á mæðradaginn í maí sl. kom ekkert annað til greina en að gera það sama á feðradaginn.

Við völdum 5 magnaða pabba og fórum við á laugardaginn í brjáluðu veðri og hittum þá og færðum þeim smá pakka í samstarfi við okkar frábæru samstarfsaðila. Vá hvað það var gaman að gleðja þá og sjá hversu glaðir þeir voru, pabbar eru nefnilega alveg magnaðir og einstaklega mikilvægir.

@arkaheilsuvorur gáfu okkur unaðslegt jólasúkkulaði frá Tony´s. Því var fullkomið að slæda jólakaffinu frá @teogkaffi ofan í kassana til að njóta með súkkulaðinu. @betteryou_island gaf okkur svo magnesium til að setja í baðið og pabba tyggjó.

Svo til að fullkomna glaðninginn var nýjasta bókin frá frá @ragnarjo // @bjarturverold sett með öllu dekrinu. Þessir pabbar eiga þetta svo sannarlega skilið og þykir okkur eintaklega vænt um að geta glatt þá og gefið þeim smá viðurkenningu á þvi hversu vel þeir standa sig

Allir pabbar, takk fyrir að vera til ✨

| Þórunn Eva

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts