Hlýtt og fallegt handverk fyrir Míu

Hlýtt og fallegt handverk fyrir Míu

Mía Magic á sér marga vini og velunnara um allt land, nokkuð sem við erum afar þakklát fyrir. Það setur oftar en ekki auka kraft í allt okkar starf að finna að fólk hugsar til Míu þegar því langar að láta gott af sér leiða. Á Húsavík var skellt í fallegan prjónaviðburð um helgina og því eiga Míudúkkur um allt land von á fallegum og mjúkum peysum á næstu misserum.

Míudúkkan skipar stóran sess í lífi margra langveikra barna sem þurfa að fara í endurteknar læknisheimsóknir. Sum þeirra þurfa auk þess að dvelja langdvölum á spítala eða sleppa löngum tímabilum úr leikskóla, skóla, tómstundum eða fleiri af þeim ótal þáttum sem fylgja því að vera barn, vegna veikinda sinna. Það getur verið sárt og þá er alltaf gott að eiga góða vinkonu eins og Míu sem fylgir manni hvert sem er og hægt er að stóla á.


Fyrir skömmu áttuðum við okkur á að fataskápur Míu er frekar einsleitur. Svo mundum við að ef það er eitthvað afl í íslensku samfélagi sem hægt er að stóla á þá er það hið öfluga prjónasamfélag sem teygir anga sína um allt land og samanstendur af handverksfólki af öllum getustigum. Það er eitthvað óskaplega fallegt við að klæðast hlýrri og mjúkri flík sem góð manneskja hefur skapað og okkur langaði að kanna hvort einhver þarna úti gætu lagt okkur lið og prjónað peysur á þær fjölmörgu Míudúkkur sem fyrirfinnast í samfélaginu og vantar líklega hlýja peysu, núna þegar veturinn er loksins genginn í garð.


Lady Circle 5 á Húsavík svaraði kallinu um leið og Eva Margrét Árnadóttir segir verkefnið hafa fallið afar vel inn í þeirra plön um að styðja sérstakt góðgerðaverkefni í marsmánuði.
„Okkur langaði til að gera eitthvað annað en að fara í beina fjárölfun eins og við höfum áður gert og datt í hug að halda þennan prjónaviðburð. Hugmyndin fékk strax góðan hljómgrunn á meðal okkar. Dagný Þóra, móðir Ásrúnar Klöru, er ein af félagskonunum okkar og systir annarrar í hópnum hefur fengið Foreldrabox frá Míu Magic. Við höfum því kynnst starfinu í gegnum þær og fannst þess vegna tilvalið að skipuleggja prjónaviðburð sem væri opinn öllum og fólk gæti komið saman og prjónað peysur fyrir Míudúkkurnar. Það var mjög í takt við okkar félagsskap að skella í þennan viðburð. Sumar okkar eru prjónakonur, aðrar ekki en styrkleikar allra nýttust svo sannarlega á viðburðinum því við skelltum í dýrindiskaffihlaðborð fyrir þau sem mættu. Okkur fannst þetta skemmtileg nálgun, að hafa viðburðinn alveg opinn fyrir öll sem hefðu áhuga á að leggja þessu lið. Húsavík er lítið samfélag og þarna var kominn rólegur og notalegur vettvangur fyrir fólk til að koma saman og tengjast. Ég er ekki héðan en er búin að búa á Húsavík í rúm þrjú ár og mér fannst sérstaklega gaman að sjá andlit sem maður mætir kannski úti í búð vera komin á prjónaviðburðinn okkar. Það er alltaf gott að kynnast fleirum, læra nöfnin og tengja við fólk.“

 


Viðburðurinn var haldinn síðastliðinn sunnudag þar sem góðir Húsvíkingar komu saman með prjóna og garn og prjónuðu saman einn eftirmiðdag. Prjónauppskriftin er sú sama fyrir alla, hönnuð af Anítu Ýr Borgþórsdóttur, en fólk var hvatt til að koma með allskonar garn, og sérstaklega til að nýta afganga sem heppnaðist frábærlega því úr varð algjört garn-afganga hlaðborð þar sem hver og einn gat fundið sér girnilegt garn. Hugmyndaflugið var algjörlega látið ráða förinni í litasamsetningu enda fátt sem kallast betur á við hugmyndafræði Míu en fjölbreytileikinn í öllum sínum myndum.

„Þetta var falleg og góð stund. Auk okkar í LC5 mættu þónokkrir prjónarar og upp úr þessu varð líka notalegt spjall. Það skiptir líka svo miklu máli.“


Eftir að Eva Margrét kynntist Míu Magic í gegnum Dagnýju fór hún að fylgja félaginu og fylgjast betur með starfinu. 
„Mér finnst hugmyndin á bak við Míu svo falleg og framkvæmdin í öllu því sem félagið tekur sér fyrir hendur ennþá magnaðari. Ég hef lesið sögur og viðtöl við fólk um það hvernig Míudúkkan og ekki síður Míubækurnar hafa hjálpað mikið. Hvað þetta gleður og hvetur börn og foreldra áfram í erfiðum verkefnum.“

Við sendum LC5 og prjónasamfélaginu á Húsavík okkar bestu þakkir og kveðjur!

Picture of Sólveig Jónsdóttir

Sólveig Jónsdóttir

er stjórnmálafræðingur og rithöfundur sem hefur starfað sem blaðamaður og pistlahöfundur um árabil auk þess að vinna við markaðsmál, hugmyndavinnu og textagerð fyrir fjölmörg almannaheillafélög. Hún hefur mikla reynslu af því að tala við ólíkt fólk, oft einstaklinga í flókinni stöðu, og nálgast viðfangs- og umfjöllunarefni af vandvirkni og virðingu.

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts