ILM x Mia Magic | upplýsingar um viðburð og sölu kertanna

ILM x Mia Magic | upplýsingar um viðburð og sölu kertanna

Við erum svo spenntar að geta loksins sagt ykkur frá viðburðinum í samstarfi við ILM candles. Kertin verða gerð í mjög takmörkuðu upplagi. Aðeins 50 stk verða framleidd til sölu og verða seld á 8.990 krónur, allur ágóði fer beint til Mia Magic. Ágóðinn fer í sjóð sem nýttur verður í að gera fleiri fallegar bækur um hana Míu.

Viðburðurinn verður haldinn í The Shed, Suðurgötu Hafnarfirði þann 30. september kl. 18-20. Við munum við bjóða upp á léttar veitingar og eiga saman kósý stund. Hægt verður að kaupa kertin á heimasíðu  ILM candles, deginum áður og sækja þau á viðburðinn til okkar.

ILM er íslenskt kertamerki og eru kertin handgerð úr 100% náttúrulegu soyavaxi. Það sem mér finnst svo æðislegt við þessi kerti er að þú getur fengið áfyllingu í kertaglasið þitt. Hversu mikil snilld. Ég hafði samband við Sögu og Hlyn sem eiga ILM og tóku þau ekkert smá vel í þetta samstarf. Hægt er að lesa meira um samstarfið HÉR.

Þið sem hafið séð Hafnarfjörð, Hellisgerði í jólafötunum þá er það hann Anthony sem er snillingurinn á bakvið öll jólaljósin. Anthony og Ýr konan hans eiga yndislegt heimili við Suðurgötu í Hafnarfirði og hefur það vakið mikila athygli fyrir áberandi fallega lóð, ljós, falleg tré, Halloween og jólin. 

Í bakgarðinum þeirra eru þau með vinnustofu og verslun, The Shed, sem við höfum fengið leyfi til að halda viðburðinn í. Við erum ekkert smá stoltar og spenntar að hafa fengið að halda viðburðinn hjá þeim og getum ekki beðið eftir að taka á móti ykkur og eiga með ykkur dásamlega kvöldstund. 

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts