Vá það sem ég er stolt af öllum sem koma að Míu á einn eða annann hátt. Í mars Míuboxi barna prjónaði Brynja dásamlega fallega peysu fyrir Lárey Rut og peysu fyrir Míu bangsann hennar í stíl. Mamma mín var alveg heilluð og keypti uppskriftina að dúkku peysunni. Núna hefur hún sent mér peysur sem hún (Guðbjörg), amma Tóta & Sólborg eru búnar að dúlla sér við að prjóna peysur á Míu meðan þær njóta sólarinnar á Kanarý. Nú eru þessar peysur komnar til mín og er ég að vinna í því að mynda þær.
Hér sjáið þið nokkrar af þessum dásamlegu peysum sem þær hafa prjónað nú þegar. Við erum einnig með nokkrar í viðbót sem eru að prjóna fyrir okkur og væri draumur einn ef þið eigið afganga og langar að vera með okkur að safna saman peysum. Þessar peysur fara svo í sölu hjá okkur til styrktar Mia Magic.
Ef ykkur langar að vera með þá er uppskriftin til sölu HÉR !
Ef ykkur langar að vera með væri gaman að heyra í ykkur svo við getum skráð ykkur. Best er að senda okkur á instagram eða mail (info@miamagic.is) ! Hægt er að skila peysum til okkar á Blómvang 6, Hafnarfirði. Gott er að hafa samband við okkur í síma 772 9600. Lokadagur skila er 15. maí 2022 og fara svo peysurnar í sölu 19.maí hjá okkur inná vefverslun Mia Magic.
Gerum svo aftur. Svo það er enginn að fara að missa af. Þurfum bara að hafa reglulega dagsetningar svo við höfum nóg af peysum.




